Þjóðskrá24. janúar 2017

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í desember 2016

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í desember 2016 var 72 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.880 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 27 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 70 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.669 milljónir króna.

Á sama tíma voru 36 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3.064 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.064 milljónir króna. Af þessum samningum voru 14 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 28 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.017 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 667 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar