Þjóðskrá08. febrúar 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2017 var 687. Heildarvelta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 47,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,9 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2017 var 687. Heildarvelta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 47,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,5 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,9 milljörðum króna.

Þegar janúar 2017 er borinn saman við desember 2016 fækkar kaupsamningum um 10% og velta minnkar um 6,3%. Í desember 2016 var 763 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 45,3 milljónir króna.

Þegar janúar 2017 er borinn saman við janúar 2016 fjölgar kaupsamningum um 26,5% og velta eykst um 33%. Í janúar 2016 var 543 kaupsamningum þinglýst, velta nam 24,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 44,9 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 10 í janúar 2017 eða 1,6% af öllum samningum. Í desember 2016 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,5% af öllum samningum. Í janúar 2016 voru makaskiptasamningar 3 eða 0,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á desember 2016 og janúar 2017

Desember 2016

Janúar 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.978

574

20.463

507

-6,9%

-11,7%

Sérbýli

9.410

148

8.043

127

-14,5%

-14,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.186

41

3.897

53

22,3%

29,3%

Samtals

34.574

763

32.402

687

-6,3%

-10,0%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2016 og janúar 2017

Janúar 2016

Janúar 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

14.578

394

20.463

507

40,4%

28,7%

Sérbýli

5.834

104

8.043

127

37,9%

22,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.957

45

3.897

53

-1,5%

17,8%

Samtals

24.368

543

32.402

687

33,0%

26,5%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Janúar 2016
Desember 2016
Janúar 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
498
722
634
27,3%
-12,2%
Makaskipti eða lausafé
5
12
11
120,0%
-8,3%
Makaskipti
3
11
10
233,3%
-9,1%
Lausafé
2
2
1
-
-
Hlutfall makaskipta
0,6%
1,5%
1,6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar