Þjóðskrá05. apríl 2017

Velta á markaði 24.mars - 30.mars 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 24. mars til og með 30. mars 2017 var 209. Þar af voru 156 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 9.543 milljónir króna og meðalupphæð á samning 45,7 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 24. mars til og með 30. mars 2017 var 209. Þar af voru 156 samningar um eignir í fjölbýli, 40 samningar um sérbýli og 13 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 9.543 milljónir króna og meðalupphæð á samning 45,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 22 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 13 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 651 milljón króna og meðalupphæð á samning 29,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 24 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 884 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 9 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 330 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,5 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 24. mars til og með 30. mars
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 126 97 21 8 88
Seltjarnarnes 4 3 1 0 3
Mosfellsbær 11 6 4 1 10
Kópavogur 31 25 6 0 23
Hafnarfjörður 30 19 7 4 24
Garðabær 7 6 1 0 11
Samtals 209 156 40 13 160
Velta (millj. kr.) 9.543 7.522
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 45,7 47,1
Suðurnes 22 13 9 0 19
Velta (millj. kr.) 651 565
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 29,6 29,5
Akureyri 24 12 11 1 18
Velta (millj. kr.) 884 569
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 36,8 31,8
Árborgarsvæðið 12 3 9 0 13
Velta (millj. kr.) 330 327
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 27,5 26,1

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar