Þjóðskrá25. apríl 2017

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 1. ársfjórðungur 2017

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 268 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 59 fleiri en úr þeim og 76 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 57 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 295 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 219 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. janúar-31. mars 2017 

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1032 428 57 219 5 64 259
Þjóðkirkjan 160 28 51 14 67
Fríkirkjur 116 79 4 4 1 8 20
Önnur trúfélög 295 68 7 44 1 26 149
Lífsskoðunarfélög 62 24 2 17 16 3
Utan félaga 359 230 14 92 3 20
Ótilgreint 40 27 2 11

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 428 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2017. Af þeim 428 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 116 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 160 í þjóðkirkjuna, þar af voru 28 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 1. ársfjórðungi 2017, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 433 35 36 141 28 179 14
Konur 16 ára og eldri 380 48 42 97 31 138 24
Börn 15 ára og yngri 219 77 38 57 3 42 2
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 433 201 17 106 3 32 74
Konur 16 ára og eldri 380 169 27 90 2 25 67
Börn 15 ára og yngri 219 58 13 23 7 118

Aldur 31. desember 2016

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 853 94 85 252 61 323
1940 og fyrr 4 1 1 1 1
1941-1945 6 1 4 1
1946-1950 9 1 3 2 1 2
1951-1955 12 4 1 1 1 4 1
1956-1960 26 2 9 4 3 8
1961-1965 34 11 4 9 9 1
1966-1970 39 6 3 15 1 13 1
1971-1975 51 5 4 24 4 12 2
1976-1980 76 10 12 23 4 24 3
1981-1985 131 17 14 36 11 47 6
1986-1990 163 8 8 46 21 71 9
1991-1995 171 11 11 51 10 81 7
1996-2000 85 7 3 21 2 44 8
2001-2005 46 11 8 19 2 6
2006-2010 38 6 6 11 15
2011-2015 50 12 10 14 1 12 1
2016 91 48 15 18 9 1
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 941 421 54 218 5 64
1940 og fyrr 4 2 1 1
1941-1945 6 3 2 1
1946-1950 9 4 1 3 1
1951-1955 12 6 2 1 3
1956-1960 26 16 2 3 4 1
1961-1965 34 13 1 13 1 4 2
1966-1970 39 16 2 9 4 8
1971-1975 51 13 2 18 3 15
1976-1980 76 28 5 14 9 20
1981-1985 131 55 13 30 1 10 22
1986-1990 163 69 6 58 6 24
1991-1995 171 89 10 33 1 7 31
1996-2000 85 55 1 14 3 12
2001-2005 46 18 5 6 2 15
2006-2010 38 22 1 7 2 6
2011-2015 50 12 4 9 3 22
2016 91 7 3 1 80

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar