Þjóðskrá10. maí 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2017 var 418. Heildarvelta nam 26 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 62,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 10,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,5 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2017 var 418. Heildarvelta nam 26 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 62,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 12,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 10,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,5 milljörðum króna.

Þegar apríl 2017 er borinn saman við mars 2017 fækkar kaupsamningum um 46,1% og velta minnkar um 27,2%. Í mars 2017 var 776 kaupsamningum þinglýst, velta nam 35,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46 milljónir króna.

Þegar apríl 2017 er borinn saman við apríl 2016 fækkar kaupsamningum um 36,6% og velta minnkar um 1,8%. Í apríl 2016 var 659 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 40,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 6 í apríl 2017 eða 1,6% af öllum samningum. Í mars 2017 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,4% af öllum samningum. Í apríl 2016 voru makaskiptasamningar 6 eða 1,0% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á mars 2017 og apríl 2017

Mars 2017

Apríl 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.778

573

12.319

292

-45,9%

-49,0%

Sérbýli

9.328

147

10.205

86

9,4%

-41,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.601

56

3.483

40

-3,3%

-28,6%

Samtals

35.707

776

26.008

418

-27,2%

-46,1%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á apríl 2016 og apríl 2017

Apríl 2016

Apríl 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.883

487

12.319

292

-27,0%

-40,0%

Sérbýli

7.096

128

10.205

86

43,8%

-32,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.519

44

3.483

40

38,3%

-9,1%

Samtals

26.497

659

26.008

418

-1,8%

-36,6%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Apríl 2016
Mars 2017
Apríl 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
615
720
378
-38,5%
-47,5%
Makaskipti eða lausafé
6
17
6
0%
-64,7%
Makaskipti
6
17
6
0%
-64,7%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,0%
2,4%
1,6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar