Þjóðskrá08. júní 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2017 var 617. Heildarvelta nam 32,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,7 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,4 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2017 var 617. Heildarvelta nam 32,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,7 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 19,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,4 milljörðum króna.

Þegar maí 2017 er borinn saman við apríl 2017 fjölgar kaupsamningum um 47,6% og velta eykst um 25%. Í apríl 2017 var 418 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 62,2 milljónir króna.

Þegar maí 2017 er borinn saman við maí 2016 fjölgar kaupsamningum um 2,2% og velta eykst um 15,5%. Í maí 2016 var 604 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,6 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 5 í maí 2017 eða 0,9% af öllum samningum. Í apríl 2017 voru makaskiptasamningar 6 eða 1,6% af öllum samningum. Í maí 2016 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Samanburður á apríl 2017 og maí 2017

Apríl 2017

Maí 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.319

292

19.730

443

60,2%

51,7%

Sérbýli

10.205

86

9.357

139

-8,3%

61,6%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.483

40

3.412

35

-2,0%

-12,5%

Samtals

26.008

418

32.500

617

25,0%

47,6%

 

Samanburður á maí 2016 og maí 2017

Maí 2016

Maí 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.585

420

19.730

443

19,0%

5,5%

Sérbýli

8.739

140

9.357

139

7,1%

0,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.821

44

3.412

35

20,9%

-20,5%

Samtals

28.145

604

32.500

617

15,5%

2,2%

 

Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Maí 2016
Apríl 2017
Maí 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
560
378
582
3,9%
54%
Makaskipti eða lausafé
10
6
6
-40%
0%
Makaskipti
9
6
5
-44,4%
-16,7%
Lausafé
1
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,6%
1,6%
0,9%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar