Þjóðskrá21. júní 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í maí 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 174 stig í maí 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 14,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 174 stig í maí 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 6,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 14,1%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 615 samningar, sem þinglýst var í maí 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2018 eru því unnar upp úr 433 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3099

2897

2455

2103

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

2752

2172

1933

Kópavogur

2127

2651

2321

2249

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2397

2151

2016

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2373

2014

2143

Breiðholt

4657

2899

2026

1921

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2113

2040

2019

Suðurnes

-

1814

1692

1211

Vesturland

-

-

1403

1162

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

1249

1166

-

Akureyri

-

2068

1817

1497

Austurland

-

1440

-

1073

Suðurland

-

1642

1534

1134

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar