Þjóðskrá05. júlí 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júní 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2017 var 608. Heildarvelta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 23,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 8,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2017 var 608. Heildarvelta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 23,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 8,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Þegar júní 2017 er borinn saman við maí 2017 fækkar kaupsamningum um 1,5% og velta eykst um 1,5%. Í maí 2017 var 617 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,7 milljónir króna.

Þegar júní 2017 er borinn saman við júní 2016 fækkar kaupsamningum um 1% og velta eykst um 27,7%. Í júní 2016 var 614 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á maí 2017 og júní 2017

Maí 2017

Júní 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.730

443

23.117

462

17,2%

4,3%

Sérbýli

9.357

139

8.130

118

-13,1%

-15,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.412

35

1.732

28

-49,3%

-20,0%

Samtals

32.500

617

32.979

608

1,5%

-1,5%

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á júní 2016 og júní 2017

Júní 2016

Júní 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

15.881

440

23.117

462

45,6%

5,0%

Sérbýli

7.929

138

8.130

118

2,5%

-14,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.007

36

1.732

28

-13,7%

-22,2%

Samtals

25.816

614

32.979

608

27,7%

-1,0%

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar