Þjóðskrá16. ágúst 2017

Mikill áhugi á útboði íslenskra vegabréfa

Nýlega voru opnuð tilboð í útboði sem Ríkiskaup sáu um fyrir hönd Þjóðskrár Íslands, um gerð íslenskra vegabréfa næstu 8 árin

Nýlega voru opnuð tilboð í útboði sem Ríkiskaup sáu um fyrir hönd Þjóðskrár Íslands, um gerð íslenskra vegabréfa næstu 8 árin. Alls bárust 12 tilboð í hönnun og framleiðslu íslensku vegabréfanna hvaðanæva að úr Evrópu og frá Ísrael. Mat á tilboðum stendur yfir hjá Ríkiskaupum og Þjóðskrá Íslands.

Áhugi fór fram úr björtustu vonum, alls bárust 12 tilboð frá jafnmörgum fyrirtækjum í Evrópu s.s.  Þýskalandi, Bretlandi, Ungverjalandi, Spáni og víðar auk eins tilboðs frá Ísrael. Fjölmargir bjóðendur voru viðstaddir opnun tilboða hjá Ríkiskaupum 10. ágúst sl.

Við fyrstu sýn lítur út fyrir að innsend tilboð séu á bilinu 30-60% af kostnaðaráætlun en fyrirliggjandi er töluverð vinna við úrvinnslu og mat tilboða og val hagstæðasta boðs.

Að sögn Margrétar Hauksdóttur, forstjóra Þjóðskrár Íslands er þessi mikla þátttaka og aukna samkeppni sem henni fylgir, staðfesting á gildi þess að íslenska ríkið bjóði út með reglulegum hætti stóra samninga sem þessa. 

Áætlað er að fyrstu nýju vegabréfin verði gefin út haustið 2018.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar