Þjóðskrá06. september 2017

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2017 var 534. Heildarvelta nam 25,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst 2017 var 534. Heildarvelta nam 25,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Þegar ágúst 2017 er borinn saman við júlí 2017 fækkar kaupsamningum um 18,8% og velta minnkar um 26,2%. Í júlí 2017 var 658 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,8 milljónir króna.

Þegar ágúst 2017 er borinn saman við ágúst 2016 fækkar kaupsamningum um 14,4% og velta minnkar um 4,9%. Í ágúst 2016 var 624 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 43,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 3 í ágúst 2017 eða 0,6% af öllum samningum. Í júlí 2017 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,6% af öllum samningum. Í ágúst 2016 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júlí 2017 og ágúst 2017

Júlí 2017

Ágúst 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.809

490

16.654

397

-23,6%

-19,0%

Sérbýli

8.943

122

7.234

102

-19,1%

-16,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.960

46

1.745

35

-55,9%

-23,9%

Samtals

34.712

658

25.632

534

-26,2%

-18,8%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á ágúst 2016 og ágúst 2017

Ágúst 2016

Ágúst 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

17.075

467

16.654

397

-2,5%

-15,0%

Sérbýli

8.248

127

7.234

102

-12,3%

-19,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.631

30

1.745

35

7,0%

16,7%

Samtals

26.953

624

25.632

534

-4,9%

-14,4%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Ágúst 2016
Júlí 2017
Ágúst 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
594
612
499
-16,0%
-18,5%
Makaskipti eða lausafé
11
10
4
-63,6%
-60,0%
Makaskipti
10
10
3
-70,0%
-70,0%
Lausafé
1
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,7%
1,6%
0,6%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar