Þjóðskrá05. október 2017

Ársþing EuroGeographics 2017 í Vínarborg

Ársþing EuroGeographics samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu

Ársþing EuroGeographics samtaka korta- og fasteignastofnana í Evrópu, var haldið dagana 1. – 3. október 2017 í Vínarborg. Fulltrúar frá 52 korta- og fasteignastofnunum frá 42 löndum Evrópu tóku þátt í þinginu og voru fulltrúar Þjóðskrár Íslands og Landmælinga Íslands þar á meðal. Ársþingið var haldið í húsnæði austurrísku kortastofnunarinnar BEV (Bundesamt für Eich- und Vermessungswesen). Auk hefðbundinna starfa á þinginu voru meðal annars fluttir fyrirlestrar og rætt um hraðar breytingar á tækni og samfélagi þar sem meðal annars var rætt um sjálfkeyrandi ökutæki, áhrif svokallaðs „disruptive technologies“, lögfræðilegar áskoranir stafrænu tækninnar og svokölluð „block-chain“ tækni.

Margrét Hauksdóttir forstjóri Þjóðskrár Íslands og Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar