Þjóðskrá18. október 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í september 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 178,7 stig í september 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 13,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 178,7 stig í september 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 4,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 13,9%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í september 2017.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 781 samningar, sem þinglýst var í september 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í september 2017 eru því unnar upp úr 526 leigusamningum sem þinglýst var í september 2017.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í september 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2950

2964

2639

2301

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3843

2850

2107

2555

Kópavogur

-

2704

2227

1678

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2365

2065

1935

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2425

2142

1739

Breiðholt

-

2466

2031

2080

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2682

-

1973

Suðurnes

-

1886

1687

1421

Vesturland

-

1375

-

1257

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1108

-

Akureyri

-

2034

1843

1591

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

1571

1575

-

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar