Þjóðskrá24. október 2017

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í september 2017

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í september 2017 var 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.820 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 12 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 44 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 539 milljónir króna.

Á sama tíma voru 32 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.817 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.144 milljónir króna. Af þessum samningum voru 7 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 17 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 492 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 272 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar