Þjóðskrá17. nóvember 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í október 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 175,4 stig í október 2017 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 175,4 stig í október 2017 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,4%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í október 2017.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 645 samningar, sem þinglýst var í október 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í október 2017 eru því unnar upp úr 480 leigusamningum sem þinglýst var í október 2017.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í október 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

2874

3050

2556

2085

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

2884

2462

2341

Kópavogur

3038

2549

2296

2104

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2354

2285

1966

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2580

2372

2136

Breiðholt

2656

2553

2335

1960

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

3812

2196

-

Suðurnes

-

2171

1684

1624

Vesturland

-

1479

1674

1390

Vestfirðir

-

-

1255

-

Norðurland nema Akureyri

-

1474

1077

931

Akureyri

2869

1968

1805

1605

Austurland

-

1732

1437

-

Suðurland

-

1884

1880

1588

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar