Þjóðskrá20. desember 2017

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í nóvember 2017

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 178,5 stig í nóvember 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 178,5 stig í nóvember 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,8% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,7% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2017.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár er 571 samningur, sem þinglýst var í nóvember 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2017 eru því unnar upp úr 410 leigusamningum sem þinglýst var í nóvember 2017.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4347

3278

2561

2692

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

4052

2810

2263

1990

Kópavogur

3021

2818

2160

2073

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2487

2187

1865

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2544

2290

2071

Breiðholt

-

2487

2238

1968

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2038

-

Suðurnes

-

2277

1985

1641

Vesturland

-

1640

1565

1479

Vestfirðir

-

-

1057

-

Norðurland nema Akureyri

-

1513

-

1867

Akureyri

-

2308

1910

1582

Austurland

-

1379

-

-

Suðurland

-

1995

1611

1213

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar