Þjóðskrá27. desember 2017

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í nóvember 2017

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði. Í nóvember 2017 var 59 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 5.907 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 18 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í nóvember 2017 var 59 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 5.907 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 18 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 62 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.083 milljónir króna.

Á sama tíma voru 34 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3.108 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.469 milljónir króna. Af þessum samningum voru 9 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 27 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 948 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 599 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Athugið að tvær breytingar hafa verið gerðar á forsendum fréttarinnar. Annars vegar er nú gerð sú krafa að samningi sé þinglýst innan árs frá undirritun, það orsakar breyttan fjölda samninga. Hins vegar var villa sem orsakaði ofmat á heildarfasteignamati þinglýstra kaupsamninga og afsala leiðrétt. Meðfylgjandi gögn endurspegla þessar breytingar.

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar