Þjóðskrá04. janúar 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í desember 2017

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2017 var 619. Heildarvelta nam 29,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 47,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1,5 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í desember 2017 var 619. Heildarvelta nam 29,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 47,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 1,5 milljörðum króna.

Þegar desember 2017 er borinn saman við nóvember 2017 fækkar kaupsamningum um 15,1% og velta minnkar um 20,7%. Í nóvember 2017 var 729 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,5 milljónir króna.

Þegar desember 2017 er borinn saman við desember 2016 fækkar kaupsamningum um 18,9% og velta minnkar um 15,6%. Í desember 2016 var 763 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 45,3 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í desember 2017 eða 1,2% af öllum samningum. Í nóvember 2017 voru makaskiptasamningar 18 eða 2,6% af öllum samningum. Í desember 2016 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,5% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á nóvember 2017 og desember 2017

Nóvember 2017

Desember 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

24.602

569

20.625

478

-16,2%

-16,0%

Sérbýli

8.632

120

7.107

100

-17,7%

-16,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.588

40

1.461

41

-59,3%

2,5%

Samtals

36.821

729

29.194

619

-20,7%

-15,1%

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á desember 2016 og desember 2017

Desember 2016

Desember 2017

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.978

574

20.625

478

-6,2%

-16,7%

Sérbýli

9.410

148

7.107

100

-24,5%

-32,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.186

41

1.461

41

-54,1%

0,0%

Samtals

34.574

763

29.194

619

-15,6%

-18,9%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Desember 2016
Nóvember 2017
Desember 2017
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
722
689
578
-19,9%
-16,1%
Makaskipti eða lausafé
12
18
8
-33,3%
-55,6%
Makaskipti
11
18
7
-36,4%
-61,1%
Lausafé
2
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,5%
2,6%
1,2%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar