Þjóðskrá12. janúar 2018

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 4. ársfjórðungur 2017

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. október til 31. desember 2017. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 2246 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 34 fleiri en úr þeim og 88 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 321 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 2101 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 298 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. október-31. desember 2017

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 4520 2477 153 1062 33 283 512
Þjóðkirkjan 231 30 89 3 29 80
Fríkirkjur 187 139 5 19 9 15
Önnur trúfélög 1150 355 29 207 21 164 374
Lífsskoðunarfélög 354 107 17 156 70 4
Utan félaga 2384 1719 65 552 9 39
Ótilgreint 214 157 7 39 11

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 2477 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. október til 31. desember 2017. Af þeim 2247 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 139 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 231 í þjóðkirkjuna, þar af voru 30 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 4. ársfjórðungi 2017, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 2488 75 78 662 196 1364 113
Konur 16 ára og eldri 1743 68 72 379 151 976 97
Börn 15 ára og yngri 289 88 37 109 7 44 4
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 2488 1362 67 692 23 165 179
Konur 16 ára og eldri 1743 1045 69 340 9 114 166
Börn 15 ára og yngri 289 70 17 30 1 4 167

Aldur 31. desember 2017

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 4270 147 157 1065 348 2343 210
1940 og fyrr 11 3 1 1 1 4 1
1941-1945 38 3 10 9 3 12 1
1946-1950 65 3 11 13 4 26 8
1951-1955 134 7 10 19 9 81 8
1956-1960 216 9 14 47 19 114 13
1961-1965 241 7 15 68 11 130 10
1966-1970 278 11 13 61 18 157 18
1971-1975 288 11 14 74 18 160 11
1976-1980 416 12 22 104 48 214 16
1981-1985 545 17 23 145 54 286 20
1986-1990 780 28 10 207 83 417 35
1991-1995 761 21 5 198 65 440 32
1996-2000 437 11 90 12 290 34
2001-2005 60 4 9 29 3 12 3
2006-2010 63 8 7 33 2 12 1
2011-2015 75 21 6 28 17 3
2016 112 55 17 24 4 12
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 4408 2467 150 1053 32 282 424
1940 og fyrr 11 6 1 1 3
1941-1945 38 25 2 5 5 1
1946-1950 65 51 2 7 4 1
1951-1955 134 103 4 18 8 1
1956-1960 216 150 4 28 2 20 12
1961-1965 241 168 7 43 1 11 11
1966-1970 278 180 7 41 6 25 19
1971-1975 288 185 11 49 18 25
1976-1980 416 229 18 98 1 37 33
1981-1985 545 272 19 160 7 28 59
1986-1990 780 337 20 282 5 49 87
1991-1995 761 395 25 215 7 54 65
1996-2000 437 293 15 82 3 16 28
2001-2005 60 31 3 7 2 17
2006-2010 63 19 7 9 28
2011-2015 75 23 5 8 2 37
2016 112 10 3 9 1 1 88

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar