Þjóðskrá22. janúar 2018

Þjóðskrá Íslands tilnefnd til íslensku vefverðlaunanna 2017

Vefurinn skra.is er einn af fimm vefjum sem tilnefndir eru til verðlauna í flokki opinberra vefja

Vefurinn skra.is er einn af fimm vefjum sem tilnefndir eru til verðlauna í flokki opinberra vefja.

Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins, haldin með það að markmiði að efla hann, verðlauna bestu vefina og hvetja þá sem starfa á þessum vettvangi til dáða. Verðlaunin fyrir 2017 verða afhent þann 26. janúar 2018 við hátíðlega athöfn í Hörpu.

Nýr vefur skra.is opnaði 1. febrúar 2017 og var mikil vinna lögð í að gera hann sem bestan úr garði. Meðal annars var allt efni endurskrifað og mikil áhersla á rafræna þjónustu og gott aðgengi fatlaðra.

Þess má geta að vefurinn skra.is var einnig í hópi fimm bestu ríkisvefja í könnuninni „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2017?“ og fékk 99 stig af 100 mögulegum.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar