Þjóðskrá07. febrúar 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2018 var 608. Heildarvelta nam 30,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2018 var 608. Heildarvelta nam 30,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 50,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Þegar janúar 2018 er borinn saman við desember 2017 fækkar kaupsamningum um 1,8% og velta eykst um 5%. Í desember 2017 var 619 kaupsamningum þinglýst, velta nam 29,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 47,2 milljónir króna.

Þegar janúar 2018 er borinn saman við janúar 2017 fækkar kaupsamningum um 11,5% og velta minnkar um 5,4%. Í janúar 2017 var 687 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 47,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í janúar 2018 eða 1,4% af öllum samningum. Í desember 2017 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,2% af öllum samningum. Í janúar 2017 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á desember 2017 og janúar 2018

Desember 2017

Janúar 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.625

478

20.004

448

-3,0%

-6,3%

Sérbýli

7.107

100

7.629

115

7,3%

15,0%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.461

41

3.008

45

105,9%

9,8%

Samtals

29.194

619

30.641

608

5,0%

-1,8%

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2017 og janúar 2018

Janúar 2017

Janúar 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.463

507

20.004

448

-2,2%

-11,6%

Sérbýli

8.043

127

7.629

115

-5,1%

-9,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.897

53

3.008

45

-22,8%

-15,1%

Samtals

32.402

687

30.641

608

-5,4%

-11,5%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Janúar 2017
Desember 2017
Janúar 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
634
578
563
-11,2%
-2,6%
Makaskipti eða lausafé
11
8
10
-9,1%
25,0%
Makaskipti
10
7
8
-20,0%
14,3%
Lausafé
1
1
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,6%
1,2%
1,4%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar