Þjóðskrá21. febrúar 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í janúar 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 177,7 stig í janúar 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 177,7 stig í janúar 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 1,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 1,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 662 samningar, sem þinglýst var í janúar 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2018 eru því unnar upp úr 496 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3241

2808

2904

2204

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

2751

2809

1952

2659

Kópavogur

5934

2738

2253

1970

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2407

2222

1813

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2370

2279

2099

Breiðholt

1825

2613

2260

1749

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2620

-

Suðurnes

-

1753

1882

1415

Vesturland

-

1616

1561

1494

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1411

1149

Akureyri

-

2074

1858

1538

Austurland

-

1835

-

-

Suðurland

-

1783

1888

1394

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar