Þjóðskrá21. febrúar 2018

Velta á markaði 9.feb - 15.feb 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 9. febrúar til og með 15. febrúar 2018 var 102. Þar af voru 82 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.344 milljónir króna og meðalupphæð á samning 52,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 13 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 7 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 556 milljónir króna og meðalupphæð á samning 42,8 milljónir króna.

Á sama tíma var 9 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli og 3 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 335 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,2 milljónir króna.

Á sama tíma var 14 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 10 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 522 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,3 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 9. febrúar til og með 15. febrúar
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 58 52 3 3 74
Seltjarnarnes 2 2 0 0 2
Mosfellsbær 4 3 1 0 7
Kópavogur 17 13 4 0 25
Hafnarfjörður 18 11 5 2 20
Garðabær 3 1 2 0 11
Samtals 102 82 15 5 139
Velta (millj. kr.) 5.344 7.026
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 52,4 50,5
Suðurnes 13 7 4 2 20
Velta (millj. kr.) 556 662
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 42,8 32,9
Akureyri 9 6 3 0 15
Velta (millj. kr.) 335 572
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 37,2 37,5
Árborgarsvæðið 14 4 10 0 12
Velta (millj. kr.) 522 376
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 37,3 31,7

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar