Þjóðskrá07. mars 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2018 var 493. Heildarvelta nam 27,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 55,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2018 var 493. Heildarvelta nam 27,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 55,4 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 18,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 5,4 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Þegar febrúar 2018 er borinn saman við janúar 2018 fækkar kaupsamningum um 18,9% og velta minnkar um 10,9%. Í janúar 2018 var 608 kaupsamningum þinglýst, velta nam 30,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,4 milljónir króna.

Þegar febrúar 2018 er borinn saman við febrúar 2017 fækkar kaupsamningum um 23,1% og velta minnkar um 13,2%. Í febrúar 2017 var 641 kaupsamningi þinglýst, velta nam 31,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 49 milljónir króna.

Í febrúar 2018 var 1 makaskiptasamningur eða 0.2% af öllum samningum. Í janúar 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1.4% af öllum samningum. Í febrúar 2017 voru makaskiptasamningar 4 eða 0.7% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á janúar 2018 og febrúar 2018

Janúar 2018

Febrúar 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.004

448

18.581

385

-7,1%

-14,1%

Sérbýli

7.629

115

5.427

75

-28,9%

-34,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.008

45

3.285

33

9,2%

-26,7%

Samtals

30.641

608

27.293

493

-10,9%

-18,9%

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2017 og febrúar 2018

Febrúar 2017

Febrúar 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.389

489

18.581

385

-17,0%

-21,3%

Sérbýli

6.663

101

5.427

75

-18,6%

-25,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.377

51

3.285

33

38,2%

-35,3%

Samtals

31.430

641

27.293

493

-13,2%

-23,1%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Febrúar 2017
Janúar 2018
Febrúar 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
590
563
460
-22,0%
-18,3%
Makaskipti eða lausafé
5
10
1
-80,0%
-90,0%
Makaskipti
4
8
1
-75,0%
-87,5%
Lausafé
1
2
0
-
-
Hlutfall makaskipta
0.7%
1.4%
0.2%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar