Þjóðskrá24. apríl 2018

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í mars 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í mars 2018 var 48 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.724 milljónir króna.

Þar af voru 27 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.822 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.272 milljónir króna.

Á sama tíma var 53 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.093 milljónir króna.

Þar af voru 19 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 626 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 555 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar