Þjóðskrá03. maí 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2018 var 635. Heildarvelta nam 32,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í apríl 2018 var 635. Heildarvelta nam 32,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,5 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,7 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 6,7 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,3 milljörðum króna.

Þegar apríl 2018 er borinn saman við mars 2018 fjölgar kaupsamningum um 1,9% og velta eykst um 4%. Í mars 2018 var 623 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,5 milljónir króna.

Þegar apríl 2018 er borinn saman við apríl 2017 fjölgar kaupsamningum um 51,9% og velta eykst um 25,8%. Í apríl 2017 var 418 kaupsamningum þinglýst, velta nam 26 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 62,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 8 í apríl 2018 eða 1,3% af öllum samningum. Í mars 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Í apríl 2017 voru makaskiptasamningar 6 eða 1,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á mars 2018 og apríl 2018

Mars 2018

Apríl 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.014

484

22.718

503

8,1%

3,9%

Sérbýli

7.601

110

6.680

97

-12,1%

-11,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.844

29

3.317

35

16,6%

20,7%

Samtals

31.458

623

32.715

635

4,0%

1,9%

 

Tafla 2. Samanburður á apríl 2017 og apríl 2018

Apríl 2017

Apríl 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

12.319

292

22.718

503

84,4%

72,3%

Sérbýli

10.205

86

6.680

97

-34,5%

12,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.483

40

3.317

35

-4,8%

-12,5%

Samtals

26.008

418

32.715

635

25,8%

51,9%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Apríl 2017
Mars 2018
Apríl 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
378
594
600
58,7%
1,0%
Makaskipti eða lausafé
6
9
8
33,3%
-11,1%
Makaskipti
6
8
8
33,3%
0,0%
Lausafé
0
1
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,6%
1,3%
1,3%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar