Þjóðskrá18. maí 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í apríl 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 184,6 stig í apríl 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 184,6 stig í apríl 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 6,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 557 samningar, sem þinglýst var í apríl 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í apríl 2018 eru því unnar upp úr 398 leigusamningum sem þinglýst var í apríl 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í apríl 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4476

3171

2737

3022

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

2947

2653

2274

Kópavogur

3236

3221

2372

1847

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2558

2289

2044

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2797

2081

2195

Breiðholt

-

2944

2309

1960

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

-

2296

2114

Suðurnes

-

-

2057

1738

Vesturland

-

1825

1685

1395

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

1274

Akureyri

-

2341

2179

1797

Austurland

-

-

1472

1282

Suðurland

-

1951

1656

1470

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar