Þjóðskrá06. júní 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2018 var 742. Heildarvelta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 26 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,1 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2018 var 742. Heildarvelta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 49,6 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 26 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,1 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Þegar maí 2018 er borinn saman við apríl 2018 fjölgar kaupsamningum um 16,9% og velta eykst um 12,5%. Í apríl 2018 var 635 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51,5 milljónir króna.

Þegar maí 2018 er borinn saman við maí 2017 fjölgar kaupsamningum um 20,3% og velta eykst um 13,3%. Í maí 2017 var 617 kaupsamningum þinglýst, velta nam 32,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,7 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 11 í maí 2018 eða 1,6% af öllum samningum. Í apríl 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Í maí 2017 voru makaskiptasamningar 5 eða 0,9% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á apríl 2018 og maí 2018

Apríl 2018

Maí 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.718

503

25.977

580

14,3%

15,3%

Sérbýli

6.680

97

9.098

123

36,2%

26,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.317

35

1.733

39

-47,8%

11,4%

Samtals

32.715

635

36.808

742

12,5%

16,9%

 

Tafla 2. Samanburður á maí 2017 og maí 2018

Maí 2017

Maí 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

19.730

443

25.977

580

31,7%

30,9%

Sérbýli

9.357

139

9.098

123

-2,8%

-11,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.412

35

1.733

39

-49,2%

11,4%

Samtals

32.500

617

36.808

742

13,3%

20,3%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Maí 2017
Apríl 2018
Maí 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
582
600
703
20,8%
17,2%
Makaskipti eða lausafé
6
8
11
83,3%
37,5%
Makaskipti
5
8
11
120%
37,5%
Lausafé
1
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
0,9%
1,3%
1,6%
-
-


 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar