Þjóðskrá26. júní 2018

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í maí 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í maí 2018 var 61 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 5.539 milljónir króna.

Þar af voru 33 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.396 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 970 milljónir króna.

Á sama tíma var 55 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.522 milljónir króna.

Þar af voru 28 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.886 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.073 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar