Þjóðskrá13. júlí 2018

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 2. ársfjórðungur 2018

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2018. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2018. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 435 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 110 fleiri en úr þeim og 302 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 89 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 296 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 362 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. apríl - 30. júní 2018

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1399 597 66 191 14 123 408
Þjóðkirkjan 162 26 62 5 24 45
Fríkirkjur 176 124 6 13 19 14
Önnur trúfélög 493 92 12 36 3 29 321
Lífsskoðunarfélög 103 35 7 9 47 5
Utan félaga 419 316 13 63 4 23
Ótilgreint 46 30 2 8 2 4

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 597 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. apríl til 30. júní 2018. Af þeim 597 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 124 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 162 í þjóðkirkjuna, þar af voru 26 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 2. ársfjórðungi 2018, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 593 46 53 223 41 211 19
Konur 16 ára og eldri 547 50 60 190 49 173 25
Börn 15 ára og yngri 259 66 63 80 13 35 2
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 593 285 22 84 7 52 143
Konur 16 ára og eldri 547 237 26 76 5 65 138
Börn 15 ára og yngri 259 75 18 31 2 6 127

Aldur 30. júní 2018

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1202 107 136 431 94 389
1940 og fyrr 3 1 2
1941-1945 15 3 5 4 1 2
1946-1950 14 2 5 2 1 3 1
1951-1955 21 4 4 1 10 2
1956-1960 31 8 8 1 14
1961-1965 49 7 7 12 3 15 5
1966-1970 61 7 14 20 4 14 2
1971-1975 90 14 9 37 8 20 2
1976-1980 138 9 15 59 16 35 4
1981-1985 157 17 13 72 15 34 6
1986-1990 212 12 17 87 25 67 4
1991-1995 219 19 11 80 9 88 12
1996-2000 123 3 2 28 6 78 6
2001-2005 69 13 24 18 4 9 1
2006-2010 43 9 7 17 6 3 1
2011-2015 50 7 15 14 2 12
2016 104 39 18 31 1 15
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1295 581 65 184 13 121
1940 og fyrr 3 2 1
1941-1945 15 8 1 2 4
1946-1950 14 6 2 2 4
1951-1955 21 11 2 4 1 3
1956-1960 31 19 1 3 4 4
1961-1965 49 22 2 13 6 6
1966-1970 61 29 6 7 6 13
1971-1975 90 35 7 15 2 9 22
1976-1980 138 62 6 11 2 14 43
1981-1985 157 59 7 21 3 14 53
1986-1990 212 78 6 40 2 29 57
1991-1995 219 97 6 28 3 20 65
1996-2000 123 90 1 11 6 15
2001-2005 69 30 9 13 2 15
2006-2010 43 15 6 7 1 14
2011-2015 50 18 3 6 1 1 21
2016 104 16 1 7 1 2 77

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar