Þjóðskrá08. ágúst 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2018 var 655. Heildarvelta nam 33,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2018 var 655. Heildarvelta nam 33,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51,3 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,7 milljörðum króna.

Þegar júlí 2018 er borinn saman við júní 2018 fjölgar kaupsamningum um 0,6% og velta eykst um 2%. Í júní 2018 var 651 kaupsamningi þinglýst, velta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,6 milljónir króna.

Þegar júlí 2018 er borinn saman við júlí 2017 fækkar kaupsamningum um 0,5% og velta minnkar um 3,2%. Í júlí 2017 var 658 kaupsamningum þinglýst, velta nam 34,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,8 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í júlí 2018 eða 1,3% af öllum samningum. Í júní 2018 voru makaskiptasamningar 4 eða 0,8% af öllum samningum. Í júlí 2017 voru makaskiptasamningar 10 eða 1,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á júní 2018 og júlí 2018

Júní 2018

Júlí 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

22.944

513

22.581

511

-1,6%

0,4%

Sérbýli

8.448

113

9.344

121

10,6%

7,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.561

25

1.683

23

7,8%

-8,0%

Samtals

32.954

651

33.608

655

2,0%

0,6%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á júlí 2017 og júlí 2018

Júlí 2017

Júlí 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.809

490

22.581

511

3,5%

4,3%

Sérbýli

8.943

122

9.344

121

4,5%

0,8%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.960

46

1.683

23

-57,5%

-50,0%

Samtals

34.712

658

33.608

655

-3,2%

0,5%

 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 


Júlí 2017
Júní 2018
Júlí 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
612
626
632
3,3%
0,8%
Makaskipti eða lausafé
10
4
8
-20%
100%
Makaskipti
10
4
7
-30%
75%
Lausafé
0
0
1
-
-
Hlutfall makaskipta
1,6%
0,6%
1,3%
-
-

 



 

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar