Þjóðskrá16. ágúst 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í júlí 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 185,6 stig í júlí 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 185,6 stig í júlí 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,3%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í júlí 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 656 samningar, sem þinglýst var í júlí 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í júlí 2018 eru því unnar upp úr 496 leigusamningum sem þinglýst var í júlí 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í júlí 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3408

2932

2649

2343

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

-

2909

2726

2330

Kópavogur

-

2640

2452

2298

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2805

2394

1960

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2790

2180

2288

Breiðholt

-

2604

2502

2368

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2769

2503

2496

Suðurnes

-

2519

2144

1668

Vesturland

-

1926

1667

1210

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1320

827

Akureyri

2752

2107

2046

1750

Austurland

-

1627

1536

-

Suðurland

-

2016

1807

1426

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar