Þjóðskrá07. september 2018

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðir í ágúst 2018

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 386 einstaklingar til hjúskapar í ágústmánuði en 90 einstaklingar skildu.

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 386 einstaklingar til hjúskapar í ágústmánuði en 90 einstaklingar skildu.

Hjúskapur
Ef horft er til síðustu missera þá hefur dregið nokkuð úr stofnun hjúskapar hér á landi. Að venju er júlí vinsælasti mánuður ársins en ágúst er næst vinsælastur.  Í fyrra gengu 532 einstaklingar í hjúskap í ágústmánuði og 506 einstaklingar árið 2016. Árið 2017 var metár í fjölda giftinga hér á landi.

Skilnaðir
Að jafnaði skráðu 115 einstaklingar sig úr hjúskap í hverjum mánuði á síðasta ári en nú í ár er fjöldinn 101 einstaklingur.  
Þjóðskrá Íslands birtir hér eftir upplýsingar mánaðarlega um stofnun hjúskapar og lögskilnaði samkvæmt skráningu þjóðskrár.  

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar