Þjóðskrá25. september 2018

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í ágúst 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í ágúst 2018 var 59 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.692 milljónir króna.

Þar af voru 46 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.513 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.640 milljónir króna.

Á sama tíma var 41 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 878 milljónir króna.

Þar af var 21 kaupsamningur skráður í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 656 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 425 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar