Þjóðskrá04. október 2018

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í september 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2018 var 707. Heildarvelta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 23,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2018 var 707. Heildarvelta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 51 milljón króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 23,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 9,5 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2,7 milljörðum króna.

Þegar september 2018 er borinn saman við ágúst 2018 fækkar kaupsamningum um 9,4% og velta minnkar um 4,9%. Í ágúst 2018 var 780 kaupsamningum þinglýst, velta nam 37,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,6 milljónir króna.

Þegar september 2018 er borinn saman við september 2017 fjölgar kaupsamningum um 46,7% og velta eykst um 55,2%. Í september 2017 var 482 kaupsamningum þinglýst, velta nam 23,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,2 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 7 í september 2018 eða 1,1% af öllum samningum. Í ágúst 2018 voru makaskiptasamningar 12 eða 1,6% af öllum samningum. Í september 2017 voru makaskiptasamningar 6 eða 1,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á ágúst 2018 og september 2018

Ágúst 2018

September 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.581

604

23.841

543

-6,8%

-10,1%

Sérbýli

9.417

124

9.536

120

1,3%

-3,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.898

52

2.654

44

-8,4%

-15,4%

Samtals

37.896

780

36.031

707

-4,9%

-9,4%

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á september 2017 og september 2018

September 2017

September 2018

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

16.053

377

23.841

543

48,5%

44,0%

Sérbýli

5.248

70

9.536

120

81,7%

71,4%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.911

35

2.654

44

38,8%

25,7%

Samtals

23.212

482

36.031

707

55,2%

46,7%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
September 2017
Ágúst 2018
September 2018
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
447
728
663
48,3%
-8,9%
Makaskipti eða lausafé
8
15
9
12,5%
-40,0%
Makaskipti
6
12
7
16,7%
-41,7%
Lausafé
2
3
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,3%
1,6%
1,1%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar