Þjóðskrá19. desember 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í nóvember 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 194,9 stig í nóvember 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 194,9 stig í nóvember 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 9,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í nóvember 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 590 samningar, sem þinglýst var í nóvember 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í nóvember 2018 eru því unnar upp úr 424 leigusamningum sem þinglýst var í nóvember 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í nóvember 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4657

3234

2820

2478

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3933

2923

2833

2343

Kópavogur

2960

2927

2411

2448

Garðabær og Hafnarfjörður

-

3296

2452

1759

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3776

3127

2533

2170

Breiðholt

-

2764

2564

2003

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2873

-

1584

Suðurnes

-

2509

2038

1620

Vesturland

-

1978

1960

1355

Vestfirðir

-

-

1194

782

Norðurland nema Akureyri

-

1371

1466

923

Akureyri

-

2265

1713

1721

Austurland

-

-

-

-

Suðurland

-

2194

1648

1128

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar