Þjóðskrá07. janúar 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í janúar 2019

Í desember síðastliðnum fækkaði skráðum í Þjóðkirkjuna um 26 manns. Þann 1. janúar sl. voru 232.646 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 fyrir mánuði.

Í desember síðastliðnum fækkaði skráðum í Þjóðkirkjuna um 26 manns. Þann 1. janúar sl. voru 232.646 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna miðað við 232.672 fyrir mánuði.  

Fjölgun mest í Kaþólska söfnuðinum og Ásatrúarfélaginu

Á sama tímabili fjölgaði í Kaþólska söfnuðinum um 57 manns eða um 0,4% og í Ásatrúarfélaginu um 44 manns eða um 1,0%. Umtalsverð aukning var einnig í Fríkirkjunni í Reykjavík eða um 30 manns sem er fjölgun upp á 0,3%. 
Þess má geta að mest hlutfallsleg aukning var í Félagi múslima á Íslandi eða um 3,2%  sem er fjölgun um 17 meðlimi en í dag eru 552 félagar skráðir í trúfélagið.

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls var 24.871 einstaklingur skráður utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. janúar sl. og fjölgaði þeim um 108 frá 1. desember 2018 eða um 0,4%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra  eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. janúar sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar