Þjóðskrá06. mars 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2019

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var tæpir 415 milljarðar síðastliðna 12 mánuði. Í febrúar var veltan rúmur 31 milljarður og hækkar hún um tæpa 4 milljarða m.v. febrúar í fyrra.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var tæpir 415 milljarðar síðastliðna 12 mánuði.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í febrúar 2019 var 580. Heildarvelta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 53,7 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,4 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,6 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3,1 milljarði króna.

Þegar febrúar 2019 er borinn saman við janúar 2019 fækkar kaupsamningum um 26,5% og velta minnkar um 31,6%. Í janúar 2019 var 789 kaupsamningum þinglýst, velta nam 45,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 57,8 milljónir króna.

Þegar febrúar 2019 er borinn saman við febrúar 2018 fjölgar kaupsamningum um 17,6% og velta eykst um 14,2%. Í febrúar 2018 var 493 kaupsamningum þinglýst, velta nam 27,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 55,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 9 í febrúar 2019 eða 1,7% af öllum samningum. Í janúar 2019 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,4% af öllum samningum. Í febrúar 2018 voru makaskiptasamningar 1 eða 0,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á janúar 2019 og febrúar 2019

Janúar 2019

Febrúar 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

27.283

572

20.418

437

-25,2%

-23,6%

Sérbýli

11.254

139

7.636

104

-32,1%

-25,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

7.044

78

3.120

39

-55,7%

-50,0%

Samtals

45.581

789

31.174

580

-31,6%

-26,5%

 

Tafla 2. Samanburður á febrúar 2018 og febrúar 2019

Febrúar 2018

Febrúar 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

18.581

385

20.418

437

9,9%

13,5%

Sérbýli

5.427

75

7.636

104

40,7%

38,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.285

33

3.120

39

-5,0%

18,2%

Samtals

27.293

493

31.174

580

14,2%

17,6%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Febrúar 2018
Janúar 2019
Febrúar 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
460
711
541
17,6%
-23,9%
Makaskipti eða lausafé
1
17
9
800%
-47,1%
Makaskipti
1
17
9
800%
-47,1%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
0,2%
2,4%
1,7%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar