Þjóðskrá18. mars 2019

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðar í febrúar 2019

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 149 einstaklingar til hjúskapar í febrúar sl. en 84 einstaklingar skildu.

Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 149 einstaklingar til hjúskapar í febrúar sl. en 84 einstaklingar skildu.

Hjúskapur

Af þeim 149 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 86 í hjúskap hjá sýslumanni (58%), 45 giftu sig í Þjóðkirkjunni (30%) og 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju (12%).
Alls gengu 3.967 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941  á árinu 2017. 

Skilnaðir

Alls skildu 84 einstaklingar í febrúarmánuði. Gengu allir frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni. 

Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019. 


Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum frá trú- og lífsskoðunarfélögum og sýslumannsembættum sem berast Þjóðskrá Íslands. 

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar