Þjóðskrá20. mars 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í febrúar 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 194,7 stig í febrúar 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 194,7 stig í febrúar 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,5% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði lækkaði vísitalan um 0,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjaliEinnig er hægt að nálgast gögnin á myndrænan hátt.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í febrúar 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 672 samningar, sem þinglýst var í febrúar 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í febrúar 2019 eru því unnar upp úr 519 leigusamningum sem þinglýst var í febrúar 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í febrúar 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4412

3227

2943

2386

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3825

3100

2714

2227

Kópavogur

3165

3081

2371

2014

Garðabær og Hafnarfjörður

3545

2960

2283

2174

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3573

2628

2378

2061

Breiðholt

4379

2777

1898

2162

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

2597

2191

-

Suðurnes

3881

2327

2091

1521

Vesturland

-

2098

1780

1588

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

-

-

Akureyri

-

2275

1964

1528

Austurland

-

-

1528

1276

Suðurland

3627

2074

1773

1330

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga. Einnig er hægt að nálgast sömu gögn á myndrænan hátt.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar