Þjóðskrá01. apríl 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - apríl 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 688 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. apríl sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 0,5%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 688 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. apríl sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  0,5%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 346 íbúa eða 0,9% fjölgun og Mosfellsbær með 214 íbúa eða 1,9% fjölgun. 

Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 6,9% en íbúum þar fjölgaði um fjóra íbúa eða úr 58 í 62 íbúa.  
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Borgarfjarðarhreppi og Þingeyjarsveit um 2,8%. 
Þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélögum af 72 sveitarfélögum landsins síðan  frá 1. desember sl. 

Fækkun í tveimur landshlutum

Fækkun hefur orðið í tveimur landshlutum frá 1. desember sl.  Á Norðurlandi vestra fækkaði um 18 íbúa og á Vestfjörðum um 3 íbúa. Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi,þar fjölgaði um 277 íbúa eða 0,9%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 1.483 íbúa eða 0,7% og íbúum á Suðurnesjum um 212 íbúa eða 0,8%. 

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. apríl sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.   

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar