Þjóðskrá03. apríl 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í mars 2019

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var rúmir 415 milljarðar síðastliðna 12 mánuði.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu var rúmir 415 milljarðar síðastliðna 12 mánuði.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í mars 2019 var 590. Heildarvelta nam 31,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 20,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 8,8 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 3 milljörðum króna.

Þegar mars 2019 er borinn saman við febrúar 2019 fjölgar kaupsamningum um 1,7% og velta eykst um 2,2%. Í febrúar 2019 var 580 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 53,7 milljónir króna.

Þegar mars 2019 er borinn saman við mars 2018 fækkar kaupsamningum um 5,3% og velta eykst um 1,3%. Í mars 2018 var 623 kaupsamningum þinglýst, velta nam 31,5 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,5 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 10 í mars 2019 eða 1,8% af öllum samningum. Í febrúar 2019 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,7% af öllum samningum. Í mars 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á febrúar 2019 og mars 2019

Febrúar 2019

Mars 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.418

437

20.142

444

-1,3%

1,6%

Sérbýli

7.636

104

8.753

113

14,6%

8,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.120

39

2.975

33

-4,7%

-15,4%

Samtals

31.174

580

31.870

590

2,2%

1,7%

Tafla 2. Samanburður á mars 2018 og mars 2019

Mars 2018

Mars 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

21.014

484

20.142

444

-4,1%

-8,3%

Sérbýli

7.601

110

8.753

113

15,2%

2,7%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

2.844

29

2.975

33

4,6%

13,8%

Samtals

31.458

623

31.870

590

1,3%

-5,3%

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 
Mars 2018
Febrúar 2019
Mars 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
594
541
557
-6,2%
3,0%
Makaskipti eða lausafé
9
9
12
33,3%
33,3%
Makaskipti
8
9
10
25%
11,1%
Lausafé
1
0
2
-
-
Hlutfall makaskipta
1,3%
1,7%
1,8%
-
-

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar