Þjóðskrá23. apríl 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í mars 2019

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ  

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í mars 2019 var 44 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.381 milljón króna.

Þar af voru 30  kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.470 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.832 milljónir króna.

Á sama tíma var 30 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 592 milljónir króna.

Þar af voru 15 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 582 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 335 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar