Þjóðskrá26. apríl 2019

Þjóðskrá Íslands ofarlega þegar kemur að trausti

Þjóðskrá Íslands hefur aldrei mælst ofar í traustskönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir skömmu.

Þjóðskrá Íslands hefur aldrei mælst ofar í traustskönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir skömmu. Í könnuninni var spurt um traust til stofnunarinnar og hversu vel einstaklingar þekkja til þjónustu og starfsemi Þjóðskrár Íslands. 

  • 96% svarenda þekkja til starfsemi Þjóðskrár Íslands.
  • 70% svarenda bera mikið traust til Þjóðskrár Íslands.
  • Einungis 3% svarenda bera lítið traust til Þjóðskrár Íslands.
  • Í samanburði Gallup við aðrar stofnanir er Þjóðskrá Íslands á meðal þeirra efstu ásamt Landhelgisgæslunni, Embætti forseta Íslands og Lögreglunni.

Nánari niðurstöður úr könnun Gallup og samanburð við aðrar stofnanir. 

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar