Þjóðskrá14. maí 2019

Fjöldi þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í apríl 2019

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í apríl 2019.

Mynd sem sýnir tímaröð yfir fjölda leigusamninga síðastliðna 13 mánuði, skipt niður á höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í apríl 2019.

Heildarfjöldi samninga á landinu var 623 í apríl 2019 og fækkar þeim um 7,6% frá mars 2019 en fjölgar um 23,9% frá apríl 2018.

Svæði Apríl 2018 Mars 2019 Apríl 2019 Breyting milli ára Breyting milli mánaða
Höfuðborgarsvæðið 326 451 403 23,6% -10,6%
Suðurnes 63 83 102 61,9% 22,9%
Vesturland 27 28 24 -11,1% -14,3%
Vestfirðir 4 7 1 -75% -85,7%
Norðurland 34 58 52 52,9% -10,3%
Austurland 13 16 9 -30,8% -43,8%
Suðurland 36 31 32 -11,1% 3,2%
Samtals 503 674 623 23,9% -7,6%

Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar