Þjóðskrá03. júní 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is og Íslyklar í maí 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.

 Mynd sem sýnir tímaröð fyrir innskráningar á Ísland.is

Myndin sýnir fjölda innskráninga gegnum innskráningarþjónustu Ísland.is

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í maí 2019 voru samtals 940.497 innskráningar. Í maí 2018 voru innskráningar samtals 684.451 og fjölgar því innskráningum um 37% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 9.030.026 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.

Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 3. júní 2019 höfðu verið gefnir út 278.231 Íslyklar til einstaklinga og 16.501 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 36,2%, rafræn skilríki á korti 0,35% og rafræn skilríki í farsíma 63,1%.

Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi Excel skjali.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar