Þjóðskrá14. júní 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í maí 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2019 var 623. Heildarvelta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,5 milljörðum króna.

Fasteignavelta á höfuðborgarsvæðinu undanfarna 13 mánuði

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í maí 2019 var 623. Heildarvelta nam 32,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,6 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,5 milljörðum króna.

Þegar maí 2019 er borinn saman við apríl 2019 fjölgar kaupsamningum um 15,4% og velta eykst um 15,5%. Í apríl 2019 var 540 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52 milljónir króna.

Þegar maí 2019 er borinn saman við maí 2018 fækkar kaupsamningum um 16% og velta minnkar um 11,9%. Í maí 2018 var 742 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 49,6 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 10 í maí 2019 eða 1,7% af öllum samningum. Í apríl 2019 voru makaskiptasamningar 13 eða 2,5% af öllum samningum. Í maí 2018 voru makaskiptasamningar 11 eða 1,6% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á apríl 2019 og maí 2019

Apríl 2019

Maí 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.583

436

22.641

483

10,0%

10,8%

Sérbýli

6.755

87

8.239

108

22,0%

24,1%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

738

17

1.542

32

108,9%

88,2%

Samtals

28.077

540

32.422

623

15,5%

15,4%

 

Tafla 2. Samanburður á maí 2018 og maí 2019

Maí 2018

Maí 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

25.977

580

22.641

483

-12,8%

-16,7%

Sérbýli

9.098

123

8.239

108

-9,4%

-12,2%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.733

39

1.542

32

-11,0%

-17,9%

Samtals

36.808

742

32.422

623

-11,9%

-16,0%


Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)
 
Maí 2018
Apríl 2019
Maí 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
703
523
591
-15,9%
13%
Makaskipti eða lausafé
11
13
10
-9,1%
-23,1%
Makaskipti
11
13
10
-9,1%
-23,1%
Lausafé
0
0
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,6%
2,5%
1,7%
-
-

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar