Þjóðskrá03. júlí 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunar-félög í júlí 2019

Fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 398 manns eða um 3,8% og í Siðmennt um 240 manns eða um 8,5% en fækkaði í Þjóðkirkjunni um 657 manns.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 657 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. júlí.  Nú eru 232.015 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum, Siðmennt og Ásatrúarfélaginu

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 398 manns eða um 3,8% og í Siðmennt um 240 manns eða um 8,5%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 159 manns sem er 3,6%. 

 

Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga

Alls voru 25.454 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júlí sl. og fjölgaði þeim um 691 frá 1. desember 2018 eða um 2,3%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. júlí sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018. 


  

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar