Þjóðskrá06. ágúst 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - ágúst 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.554 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. ágúst sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,2%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.554 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. ágúst sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á  1,2%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru

Kópavogur með 604 íbúa eða 1,6% fjölgun og Reykjanesbær með 446 íbúa eða 2,4% fjölgun.

Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 10,3%, um 6 íbúa eða úr 58 í 64 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Hvalfjarðarsveit, um 5,5% og í Tálknafjarðarhreppi um 4,6%.

Þá fækkaði íbúum í 17 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn. Sveitarfélög með undir 1000 íbúa eru 39 talsins og fækkaði íbúum í 13 þeirra. Alls eru 23

sveitafélög með íbúafjölda á bilinu 1.000 til 5.000 og fækkaði íbúum í 4 þeirra. Engin fækkun varð í sveitafélögum með yfir 5.000 íbúa á umræddu tímabili.

Fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember sl. nema á Vestfjörðum þar sem fækkar um 20 manns.

Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 719 íbúa eða 2,4%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 3.110 eða 1,4% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 586 eða 2,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. ágúst sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.  

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar