Þjóðskrá02. september 2019

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - september 2019

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.630 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. september sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,3%.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.630 á tímabilinu frá 1. desember 2018 til 1. september sl. Þetta er hlutfallsleg fjölgun upp á 1,3%. Þau sveitarfélög sem næst komu voru Kópavogur með 604 íbúa eða 1,6% fjölgun og Reykjanesbær með 446 íbúa eða 2,4% fjölgun.

 

Hlutfallslega mest fjölgun í Borgarfjarðarhreppi

Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Borgarfjarðarhrepps hlutfallslega mest eða um 9,2%, um 6 íbúa eða úr 109 í 119 íbúa.

Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Langanesbyggð, um 5,5% og í Hvalfjarðarsveit um 5,1%.

Þá fækkaði íbúum í 16 af 72 sveitarfélögum landsins frá 1. desember síðastliðinn

Fjölgar í öllum landshlutum nema á Vestfjörðum

Lítilsháttar fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum frá 1. desember sl. nema á Vestfjörðum þar sem fækkar um 7 manns.

Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi. Þar fjölgaði um 788 íbúa eða 2,7%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 3.380 eða 1,5% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 601 eða 2,2%.

Íbúum landsins hefur fjölgað um 5.127 manns eða 1,4% á ofangreindu tímabili. Þann 1. september sl. voru 361.798 einstaklingar skráðir með búsetu hér á landi samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. september sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.  

Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.

Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar