Þjóðskrá05. september 2019

Skráningar í trú- og lífsskoðunarfélög í september 2019

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 752 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. september.

Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 752 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. september.  Nú eru 231.920 einstaklingar skráðir í  Þjóðkirkjuna.

Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum og í siðmennt

Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 468 manns eða um 3,8% og í Siðmennt um 396 manns eða um 14,1,%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 211 manns sem er 4,8% fjölgun.

Alls voru 25.558 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. september sl. og fjölgaði þeim um 795 frá 1. desember 2018 eða um 3,2%.

Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. september sl.  og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar